
Ef þú vilt …
- ná betri einbeitingu
- ná settum markmiðum og njóta þess í leiðinni
- vera meiri í núinu
- vita betur hvað þú vilt og hvernig þú nærð því
- fá meiri gleði í líf þitt
- eiga meiri tíma fyrir það sem skiptir þig mestu máli
- komast að því hvað skiptir þig mestu máli
… þá er markþjálfun eitthvað fyrir þig!
Þú veist sjálf(ur) hvað þú þarft og hvað er þér fyrir bestu, þú þarft bara að finna það og til þess er markþjálfun. Grunnhugmynd markþjálfunar er að svörin búi innra með hverju og einu okkar.
Þegar við finnum okkar eigin svör þurfum við ekki lengur að leita að þeim út á við og við getum einbeitt okkur að því sem skiptir máli fyrir okkur á hverri stundu.
- Betri einbeiting
- Njóttu stundarinnar betur
- Þekktu þarfir þínar og lærðu að uppfylla þær
- Fáðu skýrari mynd af því hvað þig langar til að fá út úr lífinu
Heimsmynd okkar skýrist og við finnum styrkinn sem við eigum í okkur til að móta myndina.
Við viljum flest öll hafa eitthvað um hlutina að segja og því fylgir ábyrgð. Í markþjálfun fáum við skýra mynd af því hvaða ábyrgð er okkar að taka, sem leiðir til þess að auðveldara verður að hefjast handa eða halda áfram. Við lærum að agi er frelsi af því að við erum þá við stjórnvölin.
Ef þú hefur viljan til að vaxa, horfast í augu við sjálfa(n) þig og bæta líf þitt – þá er markþjálfun eitthvað fyrir þig.
Byrjaðu strax í dag, tíminn líður hvort eð er!